Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra

Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra verður haldin í fundarsal Ráðhússins á Hvammstanga á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar nk. kl. 15. Verður þetta 195. fundur samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins.

Á dagskrá fundarins verður síðari umræða þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir aðalsjóð og undirfyrirtæki Húnaþings vestra og bréf Landsbankans um niðurfellingu eftirstöðva láns og endurgreiðslu. Einnig verður farið yfir fundargerðir frá byggðarráði, félagsmálaráði, skipulags- og umhverfisráði, fræðsluráði og menningar- og tómstundaráði.

 

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir