Sveitarstjórnarfundur Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Næsti fundur sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 25. janúar. Mun hann hefjast kl. 16:15 í Safnahúsinu við Faxatorg.

Á fundinum verður farið yfir fundargerðir hinna ýmsu nefnda og stjórna, bæði til kynningar og staðfestingar. Einnig verður m.a. til umræðu þriggja ára áætlun 2013-2015, jafnréttisáætlun 2012-2014, hluthafasamkomulag Gagnaveitu Skagafjarðar og endurkjör í stjórn Eyvindarstaðarheiðar. Hér má sjá nánari upplýsingar um dagskrá.

Hlusta má á útsendingu frá fundinum á heimasíðu Sveitarfélagsins, með því að smella á hlekk vinstra megin á síðunni, þar sem stendur: „Útsending frá fundum sveitarstjórnar“.

 

Fleiri fréttir