Sviðsframkoma í Gúttó endurvakin í kvöld
Í tilefni af útgáfu ljóðbókar Skarphéðins Ásbjörnssonar „Rökkur“, verður sviðsframkoma í Gúttó endurvakin og boðið upp á ljóð, tóna og myndlistí kvöld. Skarphéðinn mun lesa úr bókinni, Gillon mun flytja nokkur lög sem og Þórólfur Stefánsson gítarleikari sem gæla mun við klassíska strengi. Dagskrá hefst kl. 20:30 og stendur yfir í rúma klukkustund.
Teikningar úr bókinni eftir Guðbrand Ægi, verða til sýnis auk teikninga úr bók um Þórdísi spákonu sem kom út 2011 en þær hefur listamaðurinn ekki áður sýnt á Sauðárkróki.
Sýning á teikningunum verður svo opin næstu daga á eftir milli 17:00 og 19:00