Sviðsmynd og ljós – er það nokkuð mál?

Á leiksýningum beinist athyglin að leikendum á sviði sem segja okkur sögu.  Staðreyndin er hinsvegar sú að leikendurnir mega sín lítils ef sviðsmynd og lýsing eru ekki vel unnar.  Leikfélag Sauðárkróks hefur á sínum snærum tvo völunda sem sáu um sviðsmynd og lýsingu í Svefnlausa brúðgumanum sem nú er sýndur í Bifröst.  Hvernig hannar maður sviðsmynd og lýsingu á leiksviði?

Indriði yfirsmiður: „Þetta er auðvitað samvinnuverkefni. Sviðsmyndin fer aðallega eftir því hvernig leikritið er og hvernig leikstjórinn hugsar sér umhverfið.  Leiðir inn og út af sviðinu þurfa að vera greiðar, gera þarf ráð fyrir að leikmunir komist inn og út og að það sé geymslupláss baksviðs. Allt þetta þarf svo að þola umgengni leikenda og ekki síður sviðsmanna sem þurfa að ganga um sviðið í myrki.  Svefnlausi brúðguminn gerist t.d. innandyra í tveimur íbúðum.  Því var ákveðið að grunnurinn, veggir, hurðir og gluggar, yrði einfaldur og lítið áberandi en húsgögn, smáhlutir og lýsingin myndu skapa ólíka heildarmynd á hvora íbúð fyrir sig.“

Ægir ljósameistari:
„Oft er sagt að góð leikhúslýsing sé lýsing sem enginn tekur eftir! Birtustemningar í leikhúsi eru m.a. gerðar með því að láta ljósin lýsa úr nokkrum áttum með tilheyrandi litum.  Leiklýsing gengur út á að lýsa svæðin sem leikendurnir eru á svo andlitið sjáist, en sviðslýsing gengur út á að lýsa sviðsmyndina. Oft blandast leik- og sviðslýsing saman og þá sérstaklega ef sviðið er lítið og fá ljós á því.  Litir í ljósum og á sviðinu skipta líka miklu máli, rautt getur táknað ást eða ofsa á meðan blátt getur táknað depurð, fjarlægð og kulda svo eitthvað sé nefnt.  Í Svefnlausa brúðgumanum er lýsingin í einfaldara lagi, bara tvö sett af sviðslýsingu með sínum lit í hvorri íbúð.  Síðan eru notaðir heitir og kaldir litir í gluggann til að gefa í skyn fjarlægð og tíma.“

www.skagafjordur.net/ls

Fleiri fréttir