Sýnikennsla í Reiðhöllinni í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 standa Reiðhöllin Svaðastaðir á Sauðárkróki, í samvinnu við Hestamannafélagið Léttfeta og FT, fyrir sýnikennslu með Þórarni Eymundssyni tamningameistara þar sem hann ætlar að taka fyrir mismunandi hestgerðir og fara yfir hvernig hann leysir úr algengum vandamálum sem geta komið upp við þjálfun hesta.

Léttfetafélagar verða með kaffisölu í hléi og er aðgangseyrir aðeins kr. 1.000.    Allir velkomnir.

Frítt fyrir 12 ára og yngri og skuldlausa FT félaga.

Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til reiðhallarinnar.

Fleiri fréttir