Sýning um íslensku lopapeysuna á Heimilisiðnaðarsafninu í sumar

Sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins, íslenska lopapeysan, uppruni, saga, hönnun, varopnuð á uppstigningardag, þann 30. maí sl. Er hér um að ræða farandsýningu sem á rætur að rekja til rannsóknarverkefnis Heimilisiðnaðarsafnsins, Hönnunarsafns Íslands og Gljúfrasteins, húss skáldsins, sem Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, vann. Skýrslu um rannsóknina má finna á vefsíðum safnanna.
Í framhaldi af rannsókninni var ákveðið að hlutgera afraksturinn með farandsýningu sem hönnuð var af Auði Ösp Guðmundsdóttur og var sýningin fyrst opnuð í Hönnunarsafninu í desember árið 2017. Um svipað leyti kom út bókin um íslensku lopapeysuna eftir Ásdísi Jóelsdóttur og byggir hún á fyrrnefndu rannsóknarverkefni.
Fyrri hluta árs 2018 var sýningin sett upp á Nord Atlandes Brygge í Kaupmannahöfn og fór hún þaðan til Odense. Auður Ösp setti svo sýninguna upp aftur í Heimilisiðnaðarsafninu.
Íslenska lopapeysan kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Ljóst er að engin ein prjónakona hannaði lopapeysuna, heldur hefur útlit og gerð hennar tengst mörgum áhrifaþáttum. Auður Laxness átti þó mikinn þátt í því að móta útlit peysunnar og kynna hana í gegnum tengslanet sitt.
Við opnunina fór Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri, nokkrum orðum um frumgerðir þriggja peysa sem allar eru varðveittar í safninu og voru í fyrstu
uppsetningu sýningarinnar. Peysurnar voru síðan endurgerðar áður en sýningin var send til Danmerkur. Sagði Elín að í heimildum um sjómannspeysuna, eða duggarapeysuna, úr safni Halldóru Bjarnadóttur komi fram að peysan hafi verið prjónuð árið 1920. Halldóra segir einnig að á kreppuárunum hafi svona peysur verið handprjónaðar þúsundum saman, aðallega norðanlands en einnig á Vestfjörðum og seldar Veiðarfæraverslunum í Reykjavík og Akureyri. “Þótti góð atvinna að prjóna peysurnar og eftirsótt” segir Halldóra. Gömlu peysurnar liggja frammi á meðan sýningin verður í Heimilisiðnaðarsafninu.
Elín kvað samstarfsverkefnið hafa verið mjög árangursríkt og gott dæmi um góðan ávöxt af samstarfi ólíkra safna.
Í lokaorðum Elínar kom fram að þetta væri í sautjánda sinn sem opnuð væri sérsýning í safninu sem teljist merkilegt hjá ekki stærri stofnun. Hún minnti einnig á þann heiður og ábyrgð sem byggðarlaginu hefði hlotnast að eiga slíkt safn sem Heimilisiðnaðarsafnið, sem nyti daglegrar viðurkenningar gesta, fræða- og listafólks og augljósasta dæmi um þessa viðurkenningu væri stöðugur áhugi listafólks á að fá að halda sérsýningu í safninu.
Safnasjóður styrkti bæði rannsóknarvinnuna og farandsýninguna. Einnig fékkst styrkur frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra til sýningarinnar og segir Elín að sá styrkur hafi gert Heimilisiðnaðarsafninu kleift að taka þátt í verkefninu.
Björg Baldursdóttir frá Kvæðamannafélaginu Gná, kvað stemmur bæði í upphafi athafnar og í lokin og var gerður góður rómur að.
Ágæt aðsókn var við opnunina og þáðu gestir kaffi og kleinur og áttu notalega samverustund í kaffirými safnsins.
Sumarstarfsstúlkur safnsins eru þær Þórunn Erla Guðmundsdóttir og Elísabet Eir Óttarsdóttir. Safnið er til húsa að Árbraut 29 á Blönduósi og er opnunartími þess alla daga í júní, júlí og ágúst frá kl. 10:00 til 17:00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.