Sýningum á Tifar tímans hjól hætt fyrir fullu húsi

Síðasta sýning á leikriti Leikfélags Sauðárkróks Tifar tímans hjól var haldin í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi. Stemningin í salnum var gríðarlega góð og stóðu áhorfendur upp og klöppuðu leikurum og öðrum er að sýningunni komu lof í lófa í lok sýningar.

Óhætt er að segja að höfundarnir, Árni Gunnarsson og Ægir Ásbjörnsson hafi náð að segja skemmtilega sögu í verkinu því hún hefur fallið vel í kramið hjá fólki. Alls voru fjórtán  sýningar á verkinu og uppselt á þær flestar. Ekki verða um fleiri sýningar að ræða.

Fleiri fréttir