Tæplega 40 þúsund sóttu Byggðasafn Skagfirðinga heim

Þessi mynd er tekin úr flygildi (dróna) sem tekinn var í notkun í sumar. Þetta er Tjarnarkot í Sléttuhlíð. Ljósm./BSk
Þessi mynd er tekin úr flygildi (dróna) sem tekinn var í notkun í sumar. Þetta er Tjarnarkot í Sléttuhlíð. Ljósm./BSk

Á vef Byggðasafns Skagfirðinga kemur fram að miklar annir hafa verið hjá starfsmönnum safnsins í allt sumar, bæði við fornleifarannsóknir og gestamóttökur. Þann 31. ágúst hafði verið tekið á móti samtals 39.218 gestum, 2.279 í Minjahúsinu og 36.939 í Glaumbæ.

Á vefnum segir að líkt og undanfarin sumur hafa starfsmenn Fornleifadeildar aðstoðað byggðasöguritara við rannsóknir og skráningar forn- og eyðibýla. Alls 25 manns komu að Skagfirsku kirkjurannsókninni (ScASS) á þessu sumri og unnu við fornleifauppgröft í Keflavík og fornleifarannsóknir og -skráningar í Hegranesi. Einnig hafa verið skráðar fornleifar í Hrollleifsdal, Flókadal, Jökuldal og á Héraði.

Sem fyrr höfðu þeir ellefu starfsmenn, sem voru við móttöku gesta, þann 31. ágúst tekið á móti samtals 39.218 gestum, 2.279 í Minjahúsinu og 36.939 í Glaumbæ. Fjölgað hefur um 3.877 gesti á milli ára í Glaumbæ, miðað við sama dag í fyrra. Þeim hafði hinsvegar fækkað í Minjahúsinu og samkvæmt vefnum munar þar um að 1.330 færri leituðu upplýsinga þar, nú í sumar, miðað við í fyrra.

Minjahúsvöktum er lokið þetta sumarið en opnað er ef óskað er eftir því. Í Glaumbæ verður opið alla daga til 20. september, milli 9 og 18. Frá 21. september til 20. október verður gamli bærinn í Glaumbæ opinn milli 10 og 16 alla virka daga. Áskaffi verður opið alla daga til 15. september, milli 11 og 17.

Fleiri fréttir