Tafir vegna ófyrirséðra þátta
Framkvæmdir hafa staðið við Safnahúsið á Sauðárkróki í vetur og er útboðsverk nánast lokið. Að sögn Indriða Þ. Einarssonar, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Svf. Skagafjarðar, hafa tafir orðið á verkinu vegna ýmissa ófyrirséða þátta.
Hann segir að þrátt fyrir ítarlega hönnun og góðan undirbúning það óhjákvæmilegt þegar verið er að ráðast í viðamiklar breytingar á um 50 ára gömlu húsi. Ákveðið var að ráðast í lagfæringar á sal bókasafnsins á 2. hæð sem viðbót við upphaflegt verk. Skipt verður um gólfefni á salnum ásamt því að skipt verður um einangrun og klæðningu í lofti. Öll lýsing í sal verður endurnýjuð ásamt raflögnum.
Loks segir Indriði lagfæringar á salnum nú í fullum gangi og að verkið gangi vel. Stefnt er á að framkvæmdum í sal ljúki um miðjan næsta mánuð og verður þá hægt að hefjast handa við að flytja bókasafnið inn í salinn aftur. Opnun á Safnahúsinu gæti því orðið í byrjun september en dagsetning hefur ekki verið ákveðin á þessu stigi.