Taka á sig bæði kostnaðarauka svo og hugsanlegt tekjutap

Erla B. Kristinsdóttir, f.h. rekstraraðila tjaldsvæðisins í Kirkjuhvammi hefur sent Húnaþingi vestra erindi vegna leigu á tjaldsvæðinu 23. – 27. júní nk. meðan á landsmóti UMFÍ 50+ stendur.

Vilja rekstraraðilar benda á að á meðan þeir beri ábyrgð á öllum þeim kostnaði sem til fellur vegna reksturs svæðisins landsmótsdagana 23.júní – 27. júní nk. Sá kostnaður er m.a. laun allra starfsmanna, rafmagn, hiti, hreinlætiskostnaður og sorphirða. Taki þeir einnig á sig tekjutap sem kunni að verða á þessari stóru ferðahelgi.

Var erindið lagt fram á funi Byggðaráðs Húnaþings vestra en ekki afgreitt.

Fleiri fréttir