Tane Spasev ráðinn í yngriflokkaþjálfun Tindastóls

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur samið við makedónska körfuknattleiksþjálfarann Tane Spasev um að þjálfa í yngri flokkum Tindastóls á næsta keppnistímabili. Von er á kappanum í ágúst.

Tane er fæddur árið 1977 og verður orðinn 34 ára þegar hann gengur til liðs við Tindastól. Hann var sjálfur leikmaður til ársins 2004, lék m.a. um tíma með háskólaliðum í Bandaríkjunum, en lengstum með liðum í heimalandi sínu.

Síðan 2004 hefur hann einbeitt sér að þjálfun og rekur t.d. í dag eigin körfuboltaakademíu í Stip í Makedóníu auk þess að þjálfa víðar, en hann setti sem dæmi upp körfuboltabúðir á Írlandi um páskana.

Hjá Tindastóli mun hann þjálfa þrjá yngri flokka auk þess að sinna þjálfun í Varmahlíð einu sinni í viku. Þá mun hann sinna ýmsum öðrum verkefnum á vegum unglingaráðs og aðstoða Borce með meistaraflokkinn einnig. Tane hefur mikil og góð sambönd beggja vegna Atlantsála sem án efa eiga eftir að nýtast í körfuboltastarfinu hjá Tindastóli.

Sjá nánar á Tindastóll.is

Fleiri fréttir