Tap á Þórsvelli

Leikur Tindastóls gegn Þór Akureyri í Bikarkeppni KSÍ fór fram á Þórsvelli í gærkvöldi. Stólarnir töpuðu með tveimur mörkum gegn engu. Þórsarar skoruðu bæði mörkin í fyrri hálfleik og síðari hálfleikur var markalaus. 

"Bæði mörk Þórsara má rekja til mistaka okkar leikmanna en menn læra af þeim og koma sterkir til baka. Tindastólsliðið var nokkuð heilsteipt í leiknum og spilaði ágætlega. Þetta er allt að koma og nú bíðum við eftir fyrsta sigrinum." segir á facebook-síðu Stuðningsmanna knattspyrnudeildar Tindastóls.

Tindastóll spilar sinn þriðja leik á Íslandsmótinu á laugardaginn, en þá taka þeir á móti Huginn frá Seyðisfirði.

Fleiri fréttir