Tap í fyrsta leik sumarsins hjá m.fl.kvenna

Í gær sunnudaginn 22.maí lék Tindastóll gegn Fjölni í grafarvoginum. Aðstæður voru allar hinar bestu til knattspyrnuiðkunnar, flottur völlur, sól og blíða.

Leikurinn byrjaði með látum því Tindastóll komst yfir á 3.mín þegar Sigríður Vava skoraði eftir góða fyrirgjöf frá hægri kanti, þar sem boltinn barst til hennar á fjærstöng og kláraði hún færið vel. En gleðin var ekki löng, því að í næstu sókn jafnaði Fjölnir leikinn eftir afskaplega dapran varnarleik. Fjölnir bætti síðan við tveimur mörkum á 27. og 34.mín. Og þannig var staðan í hálfleik, 3-1 fyrir Fjölni.

Fyrri hálfleikur var ekki vel leikinn af hálfu Tindastóls og var margt sem þurfti að laga fyrir seinni hálfleikinn.

Í seinni hálfleik batnaði leikur liðsins til muna og vantaði herslumuninn upp á að minnka muninn, en þegar um 8 – 9 mín eru eftir af leiknum skorar Fjölnir 2 mörk í tveimur sóknum í röð. Og urðu það lokatölur leiksins 5-1 tap.

Ljóst er eftir leikinn að Tindastóll var að leika langt undir getu, en samt var munurinn á liðinum ekki mikill. Það sem verra er að 4 af mörkum Fjölnis koma eftir slæm varnarmistök, þar sem Fjölnir fékk mörkin á silfurfati.

Það jákvæða í stöðunni er að það er stutt í næsta leik, sem er föstudaginn 27.maí gegn Draupni á heimavelli. Og þar er gott tækifæri fyrir stúlkarnar að sýna úr hverju þær eru gerðar.

Byrjunarlið

Bryndís Rut (markmaður), Fríða Rún, Sunna Björk, Kristveig Anna, Guðný Þóra, Snæbjört, Rabbý, Ólína, Þóra Rut, Rakel Svala og Sigríður Vava.

Skiptingar

46.mín Brynhildur Ó inn fyrir Snæbjörtu

59.mín Svava Rún inn fyrir Sigríði Vövu

71.mín Thelma Lind og Harpa Sif inn fyrir Ólínu og Guðnýju Þóru

Spjöld

67.mín Brynhildur Ó gult

Texti: Bjarki Már Árnason

Fleiri fréttir