Teiknisamkeppni Kardemommubæjarins
Leikfélag Sauðárkróks stendur fyrir teiknisamkeppni fyrir grunnskólabörn í Skagafirði í tengslum við uppsetningu félagsins á Kardemommubænum, sem verður frumsýndur 17. október. Myndefnið er Kardemommubærinn.
Myndin þarf að vera í stærð A4. Áskilur leikfélagið sér rétt til að nota vinningsmyndina á veggspjald sýningarinnar og einnig til að nota aðrar myndir í tengslum við uppsetninguna. Góð verðlaun eru í boði.
Myndir skulu sendar í pósti til Leikfélagsins, pósthólf 3, 550 Sauðárkrókur, í síðasta lagi föstudaginn 25. september. Með þarf að fylgja upplýsingar um fullt nafn, símanúmer, aldur og skóla. Verðlaunamyndin verður valin 29. September og tilkynnt um úrslit á heimasíðu félagsins, www.skagafjordur.net/ls.