Tekið til kostanna - hestadagar í Skagafirði, 26.-27. apríl

 Tekið til kostanna, stórsýning hestamanna í Skagafirði, fer fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki laugardagskvöldið 27. apríl. Þar munu margir af bestu hestum og knöpum landsins fara á kostum, ræktunarbú sýna gullmola sína, afkvæmi þekktra stóðhesta leika listir sínar, glæsihryssur verða kynntar til leiks og fjölbreytt atriði önnur í boði.

Ekki síst er lögð áhersla á fjölskylduvæna og fjölbreytta sýningu þar sem ólíkir aldursflokkar koma fram. Þannig má nefna að meðal atriða á sýningunni eru ungir knapar sem eru að stíga sín fyrstu skref á sýningarbrautinni og allt upp í þrautreynda heimsmeistara, auk skemmtilegs samspils þarna á milli.

Veitt verða peningaverðlaun fyrir fljótasta skeiðhestinn, glæsilegasta hest sýningarinnar og besta atriðið. Að lokinni sýningu verður dansleikur á Mælifelli þar sem Hreimur og Rúnar Eff spila ásamt hljómsveit.

Fyrr um daginn fer fram kennslusýning reiðkennaraefna Hólaskóla í reiðhöllinni og opið hús verður í Hrímnishöllinni hjá Hrossaræktarbúinu Varmalæk, bæði föstudag og laugardag. Í Hrímnishöllinni verður m.a. nokkur fjöldi hrossa til sölu og má þar finna hross allt frá veturgömlu til 1. verðlauna hrossa.

Forsala aðgöngumiða er á N1 á Sauðárkróki og er miðaverð aðeins kr. 2500,-

Fleiri fréttir