Tekið vel í tillögu um árlega viðurkenningu til Listamanns Skagafjarðar
Á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar sem fram fór þann 5. júní síðastliðinn var lögð fram tillaga frá Álfhildi Leifsdóttur fulltrúa VG og óháðra í byggðarráði þar sem hún lagði til að komið verði á árlegri viðurkenningu til handa listamanni í Skagafirði sem hefur skarað fram úr í listsköpun sinni eða stuðlað að menningarstarfi í héraðinu.
Byggðarráð tók jákvætt í tillöguna og samþykkti samhljóða að vísa henni til umsagnar og frekari útfærslu í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd, m.a. hvað varðar skilgreiningu viðurkenningar til listamanna annars vegar og samfélagsverðlauna hins vegar og við hvaða tilefni viðurkenningin er afhent.
Í tillögu sinni lagði Álfhildur til að leitað verði eftir tilnefningum frá almenningi, félagasamtökum og stofnunum innan sveitarfélagsins, og Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd velji viðkomandi listamann hverju sinni úr innsendum tillögum. Viðurkenningin verði veitt við hátíðlega athöfn á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, ár hvert. „Með þessu er stuðlað að því að lyfta fram og heiðra listsköpun í héraðinu, styðja við menningarstarf og vekja athygli á fjölbreytileika og gæðum þeirrar lista sem eiga sér stað í Skagafirði,“ segir í tillögunni.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tók málið sem fyrr segir fyrir á fundi sínum og tók undir bókun byggðarráðsþess efnis að mikilvægt sé að skilgreina þessa viðurkenningu og aðgreina hana skýrt frá samfélagsverðlaununum sem veitt eru árlega í tengslum við Sæluviku. Nefndin samþykkir samhljóða að fela verkefnastjóra að leggja fram nánari tillögur og útfærslur á þessum tveimur viðurkenningum fyrir næsta fund.
Það er víða þekkt í sveitarfélögum að listamenn séu heiðraðir með þessum eða álíka hætti. Listamenn eru að sjálfsögðu ansi breiður hópur og má til dæmis nefna tónlistarfólk, leikara, rithöfunda, listmálara o.s.frv.