Telur endalok sparisjóðakerfisins blasa við
Stofnfjáreigendur í Afli sparisjóði, sem varð til við sameiningu Sparisjóðs Siglufjarðar og Sparisjóðs Skagafjarðar árið 2008, sátu í morgun fund sem boðað hafði verið til fundar á Siglufirði. Þar voru samþykktar breytingar á samþykktum sjóðsins á þann veg að atkvæðaréttur er nú í hlutfalli við stofnfjáreign.
Þar með hefur Arionbanki, sem í dag fer með stærstan hluta stofnfjár í Afl sparisjóði, eða rúm 99%, og fer með eignarhald á hinum sameinaða sjóði Sparisjóðs Siglufjarðar og Sparisjóðs Skagafjarðar, náð yfirráðum í sjóðnum og hefur nú fimm fulltrúa í stjórn.
Arionbanki, þá Nýja Kaupþing, tók yfir starfsemi Sparisjóðs Mýrarsýslu þegar hann fell árið 2009. Af þeim sökum fer Arion banki í dag með stærstan hluta stofnfjár í Afl sparisjóði, eins og Viðskiptablað Morgunblaðsins greindi frá á dögunum.
Gísli Árnason á Sauðárkróki er einn af stofnfjáreigendum í Afli sparisjóði. Hann sagði í samtali við Feyki nú undir kvöldið að í sínum huga þýddi þetta að sparisjóðskerfið myndi líða undir lok innan árs eða svo. Undanfarin ár hefði ekki verið pólitískur vilji til að verja þetta kerfi.
Gísli mætti ásamt nokkrum einstaklingum í Skagafirði sem eiga stofnfé í sjóðnum á fundinn á Siglufirði í morgun. „Við vissum svo sem að við áttum enga möguleika, það var búið að ganga þannig frá málum,“ sagði hann.
Gísli nefnir einkum að þannig hafi verið búið um hnútana að afskriftir sjóðsins væru hærri en árið á undan. „Það er verið að keyra sjóðinn í þrot og undirbúa yfirtöku Arionbanka á honum, það hugnast okkur ekki, enda teljum við okkar hagsmuni algjörlega borna fyrir borð,“ segir Gísli og mælir þar fyrir munn áðurnefndra einstaklinga sem eiga stofnfé í sjóðnum.
Gísli bætir því við að umræddir stofnfjáreigendur, sem með þessari breytingu fari með innan við eitt prósent í sjóðnum, hafi lagt fram bókanir á fundinum og efist raunar um lögmæti fundarins. Fundargerðin var ekki aðgengileg þegar Feykir ræddi við Gísla, en hún mun berast blaðinu þegar þar að kemur.
Niðurstaða rekstrarreiknings árið 2014 sýndi tap að fjárhæð 189 milljónir króna. Munar þar mestu um aukna virðisrýrnum útlána sem fjórfaldast rúmlega frá árinu áður og er metin á 454 milljónir króna í árslok 2014 á móti 104 milljónum í árslok 2013. Þetta telur Gísli óraunhæft í ljósi þess að ekkert í rekstri sjóðsins, útlánum eða skuldbindingum hans var með öðrum hætti en fyrra ár.
Í bréfi sem Feykir hefur með höndum og birt var á vef mbl.is í gær, dagsett 10. apríl og undirritað af Sigríði Hrólfsdóttur stjórnarformanni í Afli sparisjóði segir meðal annars:
„Arionbanki hyggst óska eftir heimild frá samkeppniseftirlitinu til að fá að nýta atkvæðisrétt sinn í samræmi við eignarhlut og öðlast þannig yfirráð yfir sjóðnum í skilningi samkeppnisréttar. Í kjölfarið hyggst Arion banki selja hlut sinn í Sparisjóðnum í opnu söluferli. Arionbanki leggur sem fyrr til áherslu á að til staðar sé öflug fjármálaþjónusta í Fjallabyggð og Skagafirði.“
Einnig kemur fram í bréfinu að við gerð ársreiknings 2014 hafi verið lagt í vinnu við ítarlega greiningu á lánasafni sjóðsins og fenginn til þess utanaðkomandi sérfræðingur. Þessi vinna ásamt reglubundinni vinnu endurskoðenda sjóðsins og starfsmanns hans við ársuppgjör hafi leitt til framangreindrar niðurfærslu. Ekki náðist í Ólaf Jónsson, Sparisjóðsstjóra á Siglufirði vegna málsins.