"Það er enginn að reka svona til að verða ríkur á því"
Hjónin Bára Jónsdóttir og Sigurbjörn Björnsson hafa ásamt Guðbrandi Guðbrandssyni rekið Króksbíó á Sauðárkróki í tíu ár. Í rekstrinum felst einnig húsvarsla vegna annarra viðburða í félagsheimilinu Bifröst, en þar er Króksbíó til húsa. Þremenningarnir í Króksbíó eru í opnuviðtali Feykis í dag.
Það er ekki gróðavon heldur hugsjón og áhugi á menningu og mannlífi sem knýr starfsemina áfram, enda eiga þau þremenningarnir það sammerkt að þeim er annt um þennan ómissandi þátt í menningarlífi héraðsins.
Í viðtalinu segist Sigurbjörn ekki eiga sér neina uppáhaldsmynd en nefnir þó Lion King eftir dálitla umhugsun. „Það er sú mynd sem ég hef sýnt fyrir flesta frá því ég byrjaði. Ég var álitinn alveg genginn af göflunum þegar ég auglýsti hana kl. Um kvöld í sæluviku með ensku tali. En ég fékk rúmlega sjötíu manns á hana. Hún stendur alltaf fyrir sínu, sú mynd.“
Í ljós kemur að hann hefur líka dálæti á þeirri sígildu mynd Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu? „Þá hét vinur minn því að hann færi aldrei aftur með mér í bíó, þegar hann fór með mér á þá mynd. Það voru frekar fáir í salnum og það var ekki nóg með það að ég færi að hlæja, heldur hló ég líka á vitlausum stöðum. „Þú gerir það alltaf,“ grípur Guðbrandur inní. „Og hlærð ekkert voðalega lágt, það undirtekur í öllum salnum,“ hnýtir Bára aftan við.