Það eru engar kellingar í kvennaboltanum
Það hefur verið talsverð umræða um kellingar í kvennaboltanum að undanförnu. Konur hafa þannig verið ósáttar við að menn missi það út úr sér að karlleikmenn spili eins og kellingar þegar frammistaðan hefur verið langt frá því að vera góð.
Þannig var haft eftir Ragga Gísla, þjálfara HK, á dögunum: „Mínir menn voru eins og kellingar inni á vellinum. Hugurinn fylgdi greinilega ekki með. Á meðan var KF mætt til að berjast allan leikinn og unnu verðskuldaðan sigur.“
Í framhaldi af þessu var til dæmis bent á að árangur kvennalandsliðs Íslands hefur verið langtum betri en íslenska karlalandsliðsins. Það ætti því í raun að vera hól að segja að leikmenn spili eins og kellingar. Gott og vel. En eru fótboltakonur og -stelpur kellingar?
Nú má vel vera að það sé misjafnt hvað mönnum og konum finnst vera kellingar en teiknarar Feykis velkjast ekki í vafa um að kellingar og fótboltastelpur eru ekki alveg sama Ellan.