Þakplötur fuku og bátur slitnaði frá bryggju

Björgunarsveitinni Gretti á Hofsósi báru alla vega tvö útköll á mánudaginn var. Að sögn Elvars Más Jóhannsonar, formanns sveitarinnar, var ansi hvasst austan Vatna þennan dag. Þakplötur fuku af húsi í Fljótum og bátur losnaði frá bryggju.

Að sögn Elvar aðstoðaði Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði við að negla þakplöturnar niður og menn frá Gretti aðstoðuðu bátseiganda við að koma bátnum aftur að bryggju og festa hann þar.

Fleiri fréttir