Þegar ilmurinn breytist í fnyk!

Fröken Fabjúlöss var svo heppin að fá gefins prufu af ilmvatni sem hún var búin að vera spennt fyrir lengi og var heldur betur ástfangin af ilminum! Dásemdin ein í ponsulitlu prufuglasi!

Í morgun var hún svo í óðaönn að gera sig reddý í daginn og ákvað að dassa á sig Beyonce og vera friggin fabjúlöss í dag... Á úlnliðina fór dásemdin og nebbinn svo beint upp að til að draga inn unaðarilminn. Í stað ilmsins sem liðaðist upp úr prufuglasinu tók á móti henni fnykur sem hvaða miðaldra fress hefði verið stoltur af!

Málið er að lyktin sem finnst úr flöskunum í apótekinu er ekki sama lyktin endilega og mun vera af manni þegar búið er að spreyja ilmvatninu á. Sum ilmvötn getur fólk ekki notað sama hversu góð lyktin er upp úr glasinu, þegar það er komið á húðina breytist það í annaðhvort kattarhlandsfýlu eða lyktar eins og ilmvatnið sé sirka 30 ára gamalt og  handónýtt!

Og það er vandamálið sem Frk. Fab stóð frammi fyrir í morgun og voru góð ráð dýr! Sem betur fer hafði hún bara dúndrað þessu á úlnliðina og byrjaði hún að skrúbba með sápu, en úr óvæntri átt kom svo ráðið sem reddaði deginum og fannst Fröken Fabjúlöss þetta bara of gott ráð við of erfiðu vandamáli til þess að deila því ekki með glamúrpíunum sínum!

Það sem virkar best þegar þetta vandamál sýnir sitt ljóta trýni er að rjúka í kaffivélina og ná í notaðann kaffikorg (ef Senseo er brúkuð þá bara að rífa upp notaðann poka), slumma ágætis hrúgu á úlnliðina og nudda svo saman í smá stund eins og maður sé að nudda ilmvatni. Eftir pínu stund er svo gott að bæta sápu við og nudda aðeins meira. Skola svo úlnliðina (og vaskinn þar sem svolítið subberí myndast) og setja svo gamla góða vel lyktandi ilmvatnið sem passar svo vel :)

Góð þumalputtaregla þegar ný ilmvötn eru prufuð er að setja lítið á sig, og bara á úlnliðina ef ske kynni að fnyksvandamálið liti dagsins ljós! Ilmvatn er nefnilega eitt af því seinasta sem sett er á, svona punkturinn yfir I-ið til að fullkomna útlit dagsins- allavega er það svoleiðis hjá Fröken Fabjúlöss- og þessvegna væri það leiðinlegt að þurfa að henda sér í sturtu korter í vinnu og þurfa að mæta algjörlega ótilhöfð. Mikið auðveldara að maka á sig smá kaffikorg og vandamálið er úr sögunni!

Fleiri fréttir