Þjálfun í upphafi vetrar

Mánudagskvöldið 30. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar. Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt.

Allir hestamenn eru velkomnir og hvattir til að mæta og bæta við sig fróðleik.

Fleiri fréttir