Þjófnaður í Glaumbæ

Brotist var inn í gamla torfbæinn í Glaumbæ í Skagafirði og stolið 20 þúsund krónum úr peningakassa safnsins. Verknaðurinn átti sér stað á milli kl. 20 í gærkvöldi og 7:30 í morgun, samkvæmt Facebook-síðu Byggðasafns Skagfirðinga. Þá var lás á útidyrum var brotinn upp og gengið markvisst að verki. Ekki er vitað hver var að verki samkvæmt upplýsingum frá lögreglu en málið er til rannsóknar.  

„Látið okkur eða lögregluna endilega vita ef þið verðið vör við fólk með bunka af fimmhundruð og þúsundköllum. Það var ekkert annað hreyft og í þessu tilfelli bera að þakka það. Í bænum eru ómetanlegir safngripir sem meiri eftirsjá er að en pappírsköllunum,“ segir í færslu safnsins á Facebook. Þar segir jafnframt að þótt gjörningurinn sé vissulega áfall og kallar á enn meira eftirlit.

Fleiri fréttir