Þolinmæði þrautir vinnur allar
Frú Frábær er mikill aðdáandi allra tilkynninga og speki sem hægt er að festa á ísskápa. Á þeim mörgum má sjá „geðorðin 10“, „útivistarreglurnar“ og „táknmálsstafrófið“ svo eitthvað sé talið af alvarlegri kantinum. Svo eru það skemmtilegu skilaboðin sem kemur fólki til að brosa og eitt þannig gladdi Frúna nýlega en þar er um bæn að ræða. „Guð, gefðu mér þolinmæði.... núna.....STRAX".