Þór Hauksson Reykdal ráðinn forstöðumaður

Þór Haukson Reykdal.
Þór Haukson Reykdal.

Þór Hauksson Reykdal hefur verið ráðinn forstöðumaður nýrrar þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem mun annast greiðslu húsaleigubóta. Skrifstofan verður staðsett á Sauðárkróki og mun taka til starfa á næstu vikum. Þór er með meistarapróf í lögfræði auk þess að vera með MBA gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Ríkisskattstjóra á Akureyri frá árinu 2007.

Að sögn Unnar Sverrisdóttur, aðstoðarforstjóra Vinnumálastofnunar, mun Þór taka til starfa eins fljótt og auðið er. Hún segir að vinna við að móta starfslýsingar fyrir aðra starfsmenn sé þegar hafin og áformað að störfin verði auglýst í byrjun september. Gert er ráð fyrir 12-14 störfum við hina nýju þjónustuskrifstofu.

Loks segir Unnur að búið sé að ganga frá samningi um smíði á tölvukerfi, að undangengnu útboði. Er það fyrirtækið Prógramm sem mun sjá um það verk. Þá segir Unnur viðræður um húsnæði fyrir starfsemina á lokastigi, en ekki sé tímabært að upplýsa um það fyrr en gengið hefur verið frá samningi. 

Fleiri fréttir