Þór Magnússon fræddi gesti Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna

Íslenski safnadagurinn 2011 var haldinn hátíðlegur um land allt í gær sunnudaginn 10. júlí og voru þá flest söfn landsins opin almenningi. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna fékk góða gesti í heimsókn sem naut þess að fá leiðsögn um safnið með Þór Magnússyni þjóðminjaverði.

Daginn áður átti Byggðasafnið afmæli en það var formlega vígt og opnað til sýningar þann 9. júlí 1967. Það voru einstaklingar innan áttahagafélaga Húnvetninga og Strandamanna í Reykjavík og áhugasamir heimamenn sem unnu að stofnun þess á sjötta og sjöunda áratugnum.

Staðarvalið var engin tilviljun, enda hafði þá verið reistur á vegum Þjóðminjasafnsins skáli yfir hákarlaskipið Ófeig á Reykjatanga. Ófeigsskáli reis árið 1961 og í kjölfarið náðist samstaða um að Stranda- og Húnavatnssýslurnar tvær stofnuðu sameiginlega eitt byggðasafn yfir muni sína og minjar sem reist yrði við hlið Ófeigsskála.

Þegar safnið opnaði árið 1967 var það eitt best búna safn landsins. Nokkuð var lagt upp úr nýjungum en á safninu var endurbyggð stofa frá Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu og baðstofa frá Syðstahvammi á Vatnsnesi. Þetta var í eitt fyrsta sinn hérlendis sem heilu byggingahlutarnir voru reistir innandyra.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir