Þórður og Björn á verðlaunapall í Frumherja Ralli BÍKR
Króksararnir Þórður Ingvarsson og Björn Ingi Björnsson voru meðal þátttakenda í Frumherja Ralli BÍKR sem fram fór s.l. laugardag sunnan heiða og gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu jeppaflokkinn af miklu öryggi.
Afföll urðu nokkur í þessu ralli en 15 bílar voru skráðir til leiks en einungis 8 bílar luku keppni. Á meðal þeirra sem að féllu úr keppni var Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Jón Bjarni Hrólfsson og Halldór Gunnar Jónsson en þeir voru búnir að vera í töluverðum vandræðum framan af keppninni en með mikilli baráttu voru þeir samt sem áður í þriðja sæti þegar þeir féllu úr keppni.
Hilmar Bragi Þráinsson og Davíð Jón Ríkharðsson á MMC Lancer Evo VII komu fyrstir í mark en þeir félagar komu tæpum 49 sekúndum á undan Jóni Erni Ingileifssyni og Sigurjóni Þór Þrastarsyni á MMC Lancer Evo VI í mark. Sigurinn var nokkuð öruggur og áfallalaus.
Fleiri Króksarar tóku þátt í rallinu því þau Baldur Haraldsson og Guðrún Hildur Magnúsdóttir kepptu í flokki NT og fengu annan besta tímann úr þeim flokki.
Frekari upplýsingar er hægt að finna HÉR