Þorrablót í Árvist
Miðvikudaginn 2. febrúar var haldið þorrablót í Árvist. Nokkrum eldri borgurum var boðið í mat af því tilefni og þökkum við þeim fyrir komuna og aðstoðina. Nemendur úr 3. bekk voru búnir að undirbúa komu gestanna og settu sig í hlutverk blaðamanna, sem spurðu um lífið á síðustu öld og hvernig börn voru þá. Að lokum sungu nemendur fyrir gestina. Þetta var einstaklega skemmtilegur og dagur.