Þrælfínt þörungakrem!
Fröken Fabjúlöss var um daginn boðið að vera partur af Bláalónsakademíunni, og ákvað Frökenin að slá til þar sem akademíur hverskonar eru alveg glymrandi vettvangur fyrir hana!
Meðlimum akademíunnar var úthlutað því stórskemmtilega verkefni að prufukeyra nýja kremið sem Bláa Lónið er að smella á markað, Nourising Rich Cream eða þörungakremið eins og Frk Fab kýs að kalla það! Í kreminu eru hinir dásamlegu Bláa Lóns þörungar sem berjast með kjafti og klóm á móti öldrun húðarinnar og hafa hingað til verið meðal annars notaðir í maska í Bláa Lóns línunni.
Það fyrsta sem Frk Fab tók eftir þegar hún fór að brúka dásemdina er hversu silkimjúk húðin verður um leið og kremið hefur verið borið á og svo er ofsalega góður ilmur af því. Eftir að hafa notað kremið í 2-3 skipti fór Frökenin að taka eftir mun á þrálátum og þvermóðskufullum þurrkublettum sem hún hefur verið að díla við í frosthörkunum, og núna, einni og hálfri viku seinna hafa þurrkublettirnir þurft að játa sig sigraða í þörungastríðinu, og húðin öll mýkri og meðfærilegri!
Fröken Fabjúlöss hefur löngum tileinkað sér það viðmót að vera heiðarleg í meðmælum sínum á þeim vörum sem hún er að prufa, og Nourising Rich Cream frá Bláa Lóninu virðist ætla að skora fullt hús stiga hérna í snyrtivöruhorni Fabjúlössmans! Það er virkilega ekkert út á þetta krem að klaga og getum við hérna í heimshorni Fabjúlöss ekki annað en smellt okkar gæðastimpli á krukkuna með bros á vör.