Þriggja ára áætlun og svör við spurningum B lista
Sveitastjórn Húnaþings vestra hefur samþykkti með fimm atkvæðum framlagða fjárhagsáætlun fyrir árinu 2012, 2013 og 2014 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og fyrirtæki.
Við afgreiðslu málsins lagði Leó Örn Þorleifsson eftirfarandi bókun:
„Vegna framkominnar bókunar fulltrúa B-lista á síðasta fundi sveitarstjórnar afhendir
meirihluti sveitarstjórnar fulltrúum B-lista eintak af stefnuskrá D-lista sjálfstæðismanna og
óháðra í Húnaþingi vestra sem fram var lögð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sl. vor. Einnig
er fulltrúum B-lista afhent útskrift af bókun meirihluta sveitarstjórnar sem fram var lögð við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2011. Í umræddri stefnuskrá og bókun koma að hluta til
fram svör við framlögðum spurningum fulltrúa B-lista. Að öðru leyti eru eftirfarandi svör
lögð fram við spurningum B-lista.
1. Er gert ráð fyrir að byggja líkamsræktarsal við Íþróttamiðstöðina ?
Svar: Í fjárhagsáætlun ársins 2011 er gert ráð fyrir að fjármunum sé varið til
stækkunar og endurbóta á þreksal íþróttamiðstöðvarinnar auk þess sem fjárframlag er
til tækjakaupa. Þær framkvæmdir eru þegar hafnar og því liggur ekki fyrir hvort
ástæða sé til enn frekari aðgerða á næstu árum, en væntingar standa til þess að
úrbæturnar mæti fyrirliggjandi þörf.
2. Er gert ráð fyrir fjármagni til að byrja á uppbyggingu golfvallar?
Svar: Samkvæmt stefnuskrá D-lista og óháðra stendur vilji meirihluti sveitarstjórnar
til þess að styðja við Golfklúbbinn Hvamm um uppbyggingu golfvallar í
Kirkjuhvammi en þar sem ekki liggur fyrir fjármögnun af þeirra hálfu til verkefnisins
er ekki ráðlegt að ráðast í framkvæmdina að svo stöddu.
30
3. Er gert ráð fyrir sérmerktum, fjármunum til að leita eftir starfsemi í húsnæði skólans á
Laugarbakka?
Svar: Í samræmi við stefnuskrá D-lista og óháðra stendur ekki til að verja fjármunum
í það verkefni.
4. Hvaða framkvæmdir eru áætlaðar á tímabilinu?
Svar: Vísað er til stefnuskrár D-lista og óháðra og bókun meirihluta sem lögð var
fram við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2011.“