Þríplanki Nýprents

Undarlegasta æði Íslendinga ríður yfir láð og land þessar vikurnar þar sem menn láta taka mynd af sér teinréttum með hendur niður með síðum og andlitið að iðrum jarðar. Þetta er hin gullfallega íþróttalist sem kallast að planka.

Þrír starfsmenn Nýprents á Sauðárkróki brugðu sér í norðan logninu út fyrir hússins dyr og mynduðu Þríplanka Nýprents. Þetta eru þeir Jói, Sveinn og Guðni en þeir vilja skora á fleiri norðlenska plankara að planka og senda myndir til Feykis á netfangið feykir@feykir.is og verður plankið birt á Feyki.is um helgar. Hægt er að kynna sér plankið nánar á Icelandic Planking Community á Fésbókinni.

Fleiri fréttir