Þrjár vísindagreinar tengdar rannsóknum í Verinu

Amy Fingerle við rannsóknir. Mynd: holar.is.
Amy Fingerle við rannsóknir. Mynd: holar.is.

Nýlega hafa þrjár vísindagreinar tengdar rannsóknum í Verinu á Sauðárkróki birst í fræðitímaritum. Ein þeirra er eftir Amy Fingerle en Nicolas Larranaga, doktorsnemi við fiskeldis og fiskalíffræðideild, er meðhöfundur að tveimur greinum.

Amy Fingerle, var meistaranemi undir leiðsögn Stefáns Óla Steingrímssonar við fiskeldis- og fiskalíffræðideild, birtist greina hennar tímaritinu Ecology and Evolution. Í grein þesari, sem nálgast má hér, fjallar Amy um umhverfisþætti sem hafa áhrif á virkni, vöxt og afkomu bleikjuseiða.

Nicolas Larranaga, doktorsnemi við fiskeldis- og fiskalíffræðideild, er meðhöfundur að tveimur nýlega birtum fræðigreinum. Í greinunum fjalla þeir Cédric Tentelier og samstarfsmenn hans um umhverfisþætti sem hafa áhrif á afkomu Atlantshafslaxins. Hér er slóð á fyrri greinina og hér á þá seinni. 

Fleiri fréttir