Þrjú á pall á Andrési
Andrésar Andar leikunum sem fram fór í Hlíðarfjalli er lokið eftir mjögskemmtilegt skíðamót. Tindastóll bætti við tveimur verðlaunahöfum á degi 2 í fjallinu en ein gullverðlaun náðust á fyrsta degi.
María Finnbogadóttir vann til gullverðlauna í stórsvigi 10 ára
Jódís Helga Káradóttir vann til verðlauna í stórsvigi 8 ára og
Birna María sigurðardóttir vann til verðlauna í svigi 10 ára.
Allir keppendur frá Skíðadeild Tindastóls stóðu sig vel og voru til sóma í alla staði.