Þrjú störf við skjalasafn utanríkisráðuneytisins
feykir.is
Skagafjörður
04.04.2016
kl. 13.45
Ráðgert er að þrjú störf verði við skjalasafn utanríkisráðuneytisins sem taka á til starfa á Sauðárkróki í sumar, að sögn Helgu Hauksdóttur, mannauðsstjóra hjá utanríkisráðuneytinu.
Helga sagði húsnæðismálin vera í vinnslu þegar Feykir spurðist fyrir um hvar starfsemin yrði staðsett, en ljóst er að hún verður á Sauðárkróki. Störfin voru auglýst á dögunum og er m.a. krafist góðrar tungumálakunnáttu umsækjenda og menntunar sem nýtist í starfi. Umsóknarfrestur rennur út í dag.