Þrjú útköll í gær og nótt

Björgunarsveitin Húnar í Húnaþingi vestra hafði í nógu að snúast síðasta sólahringinn en beðið var þrisvar sinnum um aðstoð hennar síðasta sólahringinn. Hafði fólk lent í vandræðum á Holtavörðuheiði í gær og nótt. Fyrsta útkallið kom upp úr klukkan fimm í gær en þá lenti ökumaður í vandræðum er bíll hans endaði utan vegar á heiðinni og þurfti tvo björgunarsveitabíla til að spila bílinn upp á veginn aftur.

 

Annað útkallið kom um klukkan tíu í gærkvöld en þá óskaði ökumaður eftir aðstoð norðan í heiðinni en samkvæmt heimasíðu Húna treysti hann sér ekki lengra vegna hálku.

Síðasta aðstoðarbeiðnin barst svo rétt fyrir eitt í nótt en þá hafði bíll lent utan vegar norðan í heiðinni. Fólkið í þeim bíl fékk far niður af heiðinni í björgunarsveitabíl en bíll þess skilin eftir og verður hann sóttur í dag. Flughálka var á heiðninni í gærkvöld og stórvarasamt að vera á ferðinni.

Fleiri fréttir