Þröstur Leó til Tindastóls
Körfuknattleiksdeildin hefur samið við Þröst Leó Jóhannsson, fyrrverandi leikmann Keflavíkur, um að leika með Tindastólsliðinu í Iceland Express deildinni og er samningurinn til allt að tveggja ára. Þröstur 22 ára og er tveir metrar á hæð og leikur í stöðu framherja. Hann er fjölhæfur leikmaður og kemur til með að styrkja leikmannahóp liðsins mikið.
Í vetur var hann með 6.2 stig að meðaltali í leik, 3.5 frá köst og 1.2 stoðsendingar. Að sögn Geirs Eyjólfssonar formanns körfuknattleiksdeildar hefur Tindastóll haft augastað á Þresti í talsverðan tíma og það sé sérstaklega ánægjulegt að fá hann til liðs við félagið. Það sýni svo ekki verði um villst að góðir íslenskir leikmenn sjái það sem áhugaverðan kost að spila með liðinu undir stjórn Borce Ilievski. Þess má geta að Þröstur er bróðir Guðjóns knattspyrnuþjálfara hjá Tindastóli.
Nú er verið að ganga frá samningum við heimamenn og verður nánar tilkynnt um það á næstunni
Tindastoll.is