Þröstur Leó vafflaði Kjarnann upp

Hinn eitursnjalli leikmaður Tindastóls í körfunni Þröstur Leó Jóhannsson stóð í ströngu í morgun við að baka vöfflur fyrir starfsfólk Kjarnans á Sauðárkróki. -Ég tapaði veðmáli, sagði Þröstur aðspurður um hvers vegna hann stæði í þessu.

 

–Ég gerði veðmál við Matta um að ég tæki þetta að mér ef leikurinn myndi tapast í gær, sagði Þröstur en hann var frekar sigurviss fyrir leikinn. Marteinn Jónsson forstöðumaður Kjarnans var að vonum ánægður með kappann þar sem hann bakaði á sex vöfflujárnum enda áætlað að baka um 300 vöfflur fyrir starfsmenn kjarnans og aðra gesti sem vissu af þessu og ætluðu ekki að láta sig vanta.

Þröstur Leó segist ætla að íhuga það betur næst hvort hann fari í veðmál aftur. –En maður verður að standa við það sem maður segir.

Fleiri fréttir