Þungar áhyggjur af boðuðum niðurskurði

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur lýst yfir þungum áhyggjum af boðuðum niðurskurði í Heilbrigðisstofnun Vesturlands í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012, þar sem það muni óhjákvæmilega bitna á rekstri stofnunarinnar í Húnaþingi vestra.

Kemur þetta fram í bókun sem samþykkt var á síðasta sveitarstjórnarfundi þann 10. nóvember sl. Þar segir jafnframt að niðurskurður fjárveitinga til stofnunarinnar á Hvammstanga hafi verið umtalsverður á síðastliðnum árum og er ljóst að frekari niðurskurður mun einungis þýða fækkun starfa og skerðingu á þjónustu.

Fleiri fréttir