Þuríður Harpa bloggar um frábæra skíðahelgi

Ég er alveg í skýjunum eftir frábæra skíðahelgi með fullt af frábæru fólki bæði hreyfihömluðu og óhömluðu. Ég vissi ekki hvað ég var að fara út í á föstudag þegar ég brunaði með dóttlu inn á Akureyri, helginni átti að verja á Byskíði sem er nokkurskonar skíðasleði á 2 skíðum og svo eru 2 handskíði til að stjórna með, þeir sem eru lengra komnir og flínkari fara á svokölluð Monoskíði sem er hærra sæti og eitt skíði. Það eru mörg ár síðan ég renndi mér í snjó síðast en eftir þetta námskeið ætla ég örugglega að mæta þarna aftur. Það er fátt sem skyggir á gleði mína varðandi þessa helgi, varla að hægt sé að nöldra yfir veðrinu sem hefði þó mátt vera betra í dag sunnudag en Hlíðarfjall var lokað í dag vegna veðurs og því varð ekkert af skíðeríi. Vetraríþróttamiðstöð Íslands stendur fyrir skíðakennslunni, á þessu námskeiði vorum við 10 stk. á skíðasleðum og með hverjum voru einn eða fleiri leiðbeinendur. Að kennslunni var vel staðið og fékk ég heilmikið út úr þessari helgi. Það er líka verulega upplífgandi að sjá að ekkert er ómögulegt, fólkið sem að þessum námskeiðum stendur á sannkallað hrós skilið, bæði kennarar og sjálfboðaliðar. Ég hvet fólk til að hafa samband við Hlíðarfjall ef það langar að prófa að fara á skíðabúnaðinn, þar eru starfandi frábærir leiðbeinendur sem kenna fólki á þetta allt saman. Ég vildi að ég hefði farið miklu fyrr í þetta og svo var svo gaman að hitta fólkið sem var þarna líka að fara á skíði. Ég var afskaplega heppin með náttstað en við gistum á Skjaldarvík sem er staðsett rétt fyrir utan Akureyri. Skjaldarvík er best útbúið hótel/gistiheimili sem ég hef verið á hér á Íslandi. Þarna er gott að komast inn og nóg af bílastæðum, allt á einni hæð og engin þrengsli. Hurðar allar vel breiðar og herbergi rúmgóð, rúm mættu vera lægri þannig að auðveldara sé að fara úr hjólastól og yfir í rúm en alveg himneskt að sofa þarna eftir dag á skíðum. Baðherbergi eru á ganginum amk. 2 – 3 á hverjum gangi, stór og með fínu aðgengi í sturtu. Salerni eru öll með handstoðum, eina sem vantar er sturtustóll á hjólum svo maður geti auðveldlega rúllað sér í sturtuna. Gestgjafar á Skjaldarvík eru sérlega notaleg hjón og morgunverðurinn algjört æði.

Allavega við erum komnar heim mæðgurnar eftir frábæra helgi og erum strax farnar að hlakka til næstu ferðar.



Fleiri fréttir