Þýskur rithöfundur les úr bók sinni

Þýski sakamálarithöfundurinn, Íslandsvinurinn og barnabókahöfundurinn Gabriele Schneider ætlar þann 20. júlí nk. að lesa úr nýrri sakamálabók sinni Schafe im Nebel á Bókasafni Hvammstanga við Höfðabraut 6, kl. 14:00.

Viðburðurinn fer fram á þýsku, en Gabriele talar einnig smá íslensku og einnig verdur Gudrun Kloes á staðnum sem túlkur. Gabriele er aðili að samtökum um sakamálabókaritun í Þýskalandi. Hún mun lesa upp úr bók sinni vítt og breytt um Ísland dagana 19.-25. júlí nk. og er tilvalið að líta við á bókasafninu og njóta stundarinnar.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir