Tíðar bilanir á nýju ári
Á nýju ári hafa bilanir verið óvenju tíðar á dreifikerfi hitaveitunnar á Sauðárkróki. Það byrjaði með því að stofninn í Aðalgötunni fór að leka fyrir utan “ Stöðina“ og kom í ljós mikil tæring við samskeyti á rörum þar sem frágangi á einangrunarkápu hefur verið áfátt, en lögnin er sennilega síðan um 1970.
Rétt eftir að viðgerð lauk í Aðalgötunni fór hitaveitulögn að leka í Raftahlíð, neðsta botnlanganum, en þar voru samskonar vandamál til staðar þó að lagnir þar séu ekki eins gamlar og er viðgerð þar lokið. Einnig lak kalt vatn á þessum slóðum og að sögn veitumanna bagalegt að fá svona bilanir þegar frost er í jörðu sem gerir alla vinnu og frágang mun erfiðari.
/skv.is