Tilboðsdagar í Versluninni Eyri

Verslunin Eyri. Ljósm./BÞ
Verslunin Eyri. Ljósm./BÞ

Verslunin Eyri á Sauðárkróki býður upp á fjölda tilboða næstu tvo daga, í tilefni af Skagfirskum bændadögum. „Við ákváðum að taka þátt í bændadögum og fylla búðina af tilboðum,“ sagði Helga Rósa Pálsdóttir sölumaður verslunarinnar í samtali við Feyki.  

Þá verður rýmingarsala á völdum vörum og einnig voru fengnir sérfræðingar að sunnan til að standa vaktina með starfsmönnum verslunarinnar þessa tvo daga. Þ.m.t. Sölumaður frá Málningu, frá Álfaborg og frá Tengi.

Á morgun verða þar að auki frá aðili frá Tandur og dýralæknir, sem er verslunarstjóri í Kaupfélagi Borgfirðinga.

„Við erum með tilboð sem ekki er hægt að láta framhjá sér fara af hreinlætistækjum, salernum, sturtuklefum, málningu, flísum, hestavörum, bændavörum og svo má lengi telja. Einnig vorum við að taka upp nýjar vörur  HEAT HOLDER´S  frá Sock Shop.  Sem eru sokkar, vettlingar og húfur, líka alveg æðislegar sokkabuxur og leggings,“ sagði Helga Rósa að lokum.  

 

Fleiri fréttir