Tilkynning frá Húsfreyjunum

Eins og kunnugt er gefa Húsfreyjur á Vatnsnesi ágóða af viðburðum í Hamarsbúð til góðgerðar- og samfélagsmála. Ekki er tilefni til að greina sérstaklega frá styrkjum til einstaklinga, en undanfarið hafa Húsfreyjurnar styrkt Björgunarsveitina Húna til kaupa á björgunarbáti og einnig leikskólann Ásgarð til kaupa á vönduðu leikfangi. Allur ágóði af bögglauppboði á Björtum nóttum – Fjöruhlaðborði, rennur svo til Elds í Húnaþingi – Unglistahátíðar.

Það er Húsfreyjunum sérstakt ánægjuefni að geta styrkt gott málefni með þessum hætti. Þess ber að geta að ágóði bögglauppboðsins var mun meiri í þetta sinn en oft áður.

Öllum þeim sem tóku þátt í þessari skemmtilegu fjáröflun er þakkað kærlega.

Fleiri fréttir