Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig
Menntamálaráðuneytið hefur sett af stað sérstakt tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi og var samningur um verkefnið undirritaður í gær af menntamálaráðherra og rektor Háskólans á Bifröst. Meginmarkmið samningsins er að kanna þörf fyrir menntun meðal einstaklinga og fyrirtækja í kjördæminu, stuðla að auknu samstarfi fræðsluaðila, kanna þörf fyrir námsstyrki og þróa aðferðir við mat á fyrra námi og reynslu inn í hið hefðbundna skólakerfi.
Verkefni þetta er liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi og eitt af nokkrum verkefnum sem sett voru af stað í framhaldi af kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins í maí 2011. Sérstök verkefnisstjórn var sett yfir þetta tilraunaverkefni. Formaður hennar er Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, en skólinn annast jafnframt umsýslu um verkefnið. Í verkefnisstjórninni sitja fulltrúar atvinnulífs, stéttarfélaga, sveitarfélaga og skóla- og fræðslustofnana í Norðvesturkjördæmi.
Meginmarkmið með samningi þessum eru að:
• Kanna þörf meðal einstaklinga á vinnumarkaði í Norðvesturkjördæmi fyrir menntun og gera tillögur að nýjum námsúrræðum ef þörf reynist.
• Stuðla að auknu samstarfi framhaldsfræðsluaðila, framhaldsskóla og háskóla á svæðinu um menntun á vinnumarkaði.
• Þróa og gera tilraunir með aðferðir sem auðvelda mat á fyrra námi og reynslu inn í hið hefðbundna skólakerfi og gera tillögu um framtíðarskipan þeirra mála.
• Kanna þörf fyrir námsstyrki, þróa og prófa útfærslur á slíku kerfi í framhaldi af þeirri tilraun sem gerð var í átakinu Nám er vinnandi vegur (NVV).
• Meta kostnað við einstök verkefni og verkefnaþætti.
Nú í sumar, í júní til ágúst, verða gerðar viðamiklar kannanir á þörf og eftirspurn eftir námi hjá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Annars vegar eru gerðar hefðbundnar formlegar kannanir og hins vegar er leitað beint til stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja og stofnana í kjördæminu. Á vegum verkefnisins hefur verið ráðið fólk til þess að sjá um framkvæmdina, taka viðtöl og vinna úr þeim.
Hækkað menntunarstig er af öllum sem til þekkja eitt af lykilatriðum fyrir vöxt og viðgang atvinnulífsins á svæðinu. Því skiptir máli að stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja og stofnana taki vel á móti starfsfólki verkefnisins þegar það leitar eftir viðtölum og upplýsingum. Áríðandi er að gefa sem raunsannasta mynd af stöðunni og að álit viðmælenda komist sem best til skila. Það verður einmitt á grundvelli þeirra viðhorfa og upplýsinga um stöðu mála sem fram koma frá stjórnendum og starfsfólki sem tillögur um verkefni og aðgerðir verða settar fram.