Tiltektadagur á Blönduósi

Byggðaráð Blönduósbæjar hefur ákveðið að halda tiltektardag í sveitarfélaginu þann 14. maí næstkomandi. Huni.is greinir frá að sveitarstjóra hafi verið falið það verkefni að vinna nánar að undirbúningi dagsins, en bæjarbúar verða hvattir til að hreinsa til í sínu nánasta umhverfi.

Samkvæmt Facebook síðu Blönduósbæjar er gámasvæðið opið þennan dag frá kl. 13.00 til 17.30. Einnig verður boðið upp á grill í Félagsheimilinu á Blönduósi kl. 18.00 sama dag, að lokinni tiltekt. Þar mun Sveitastjórn Blönduósbæjar sjá um grillið og allir eru hvattir til að mæta og hafa góða skapið með í för.

Fleiri fréttir