Tímabært að huga að öryggismálum landbúnaðartækja

Nú er framundan sá tími þar sem notkun dráttarvéla og annarra stórra landbúnaðartækja er í hámarki. Auk þess er víða fleira fólk við störf á sveitabæjum á sumrin en öðrum árstíðum. Því er rétt að minna á öryggismál í landbúnaði.

Á heimasíðu Vinnueftirlitsins er einfaldur gátlisti, þar sem farið er yfir helstu öryggisþætti dráttarvéla og annarra búvéla. Nú þegar annasamt er í sveitum landsins og jarðvinnsla, dreifing á tilbúnum áburði og búfjáráburði standa sem hæst, er ekki úr vegi að fara yfir helstu öryggisatriði og ástand hlífabúnaðar. Gátlista af þessu tagi er mikilvægt að prenta út og hengja upp á áberandi stað í vélageymslunni - þannig minna þeir á mikilvægi málsins á hverjum degi.

Aðalfundur Landssambands kúabænda, sem haldinn var á Egilsstöðum í mars sl samþykkti ályktun um öryggismál í landbúnaði. Ályktunin birtist nýlega á vef samtakanna, naut.is. Er hún á þessa leið:

Aðalfundur Landssamband kúabænda, haldinn á Egilsstöðum 22.-23. mars 2013, tekur undir ályktanir Búnaðarþings 2013 varðandi öryggi og heilsuvernd við landbúnaðarstörf. Fundurinn hvetur til samstarfs LK, BÍ og Landbúnaðarháskólans um að efna til átaks í öryggismálum í landbúnaði í samstarfi við Vinnueftirlitið og tryggingarfélög.

Fleiri fréttir