Tímasetning Lummudaga umdeild

Á fundi atvinnu- og ferðamálanefndar Svf. Skagafjarðar í gær var tekið fyrir erindi frá Knattspyrnudeild Tindastóls þar sem óskað er eftir því að tímasetning Lummudaga í Skagafirði verði endurskoðuð. 

Lummudagar eru haldnir af Skagafjarðarhraðlestinni sem ákveða þar af leiðandi tímasetningu þeirra en þeir hafa verið haldnir sömu helgi og Landsbankamótið sem er fjölliðamót í fótbolta yngri flokka kvenna og Tindastóll stendur fyrir. Foreldrar þeirra heimabarna sem þátt taka í mótinu hafa lýst yfir óánægju með tímasetninguna þar sem þeir ná ekki að taka þátt í dagskrá Lummudaganna sem fara fram á sama tíma.

Nefndin sér hinsvegar ekki sérstaka ástæðu til að mæla með því að tímasetningu þeirra verði breytt og telur Lummudaga góða viðbót við þá viðburði sem fram fara í firðinum þessa sömu helgi.

Fleiri fréttir