Tindastóll beið lægri hlut gegn Ísfirðingum

Lið Tindastóls sótti KFÍ heim á Ísafjörð á föstudaginn og þrátt fyrir að tefla fram splunkunýjum leikmanni höfðu strákarnir ekki erindi sem erfiði og töpuðu á endanum með sjö stiga mun, 92-85.

Stólarnir fóru vel af stað og ekki hvað síst sá nýji, Roburt Sallie, sem gerði fyrstu sex stig liðsins. Leikurinn var hnífjafn í fyrsta leikhluta og leiddu Tindastólsmenn með einu stigi að honum loknum, 22-23. Heimamenn byrjuðu annan leikhluta með tveimur 3ja stiga körfum og náðu forystunni. Stólarnir þéttu vörnina og um miðjan leikhlutann jafnaði Helgi Rafn, 31-31, og síðan var stál í stál fram að hléi en þá var staðan jöfn, 41-41.

Tindastólsmenn komu ekki nógu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og á mínútu kafla breyttist staðan úr 46-45 í 55-45 og heimamenn komnir með 10 stiga forskot. Stólarnir reyndu að koma sér inn í leikinn en skotinn voru ekki að detta þannig að KFÍ bætti við og náði 14 stiga forskoti þegar tvær mínútur lifðu af þriðja fjórðungi. Valentine og Sallie gerðu hins vegar sex síðustu stigin í leikhlutanum og gáfu gestunum smá von. Staðan 66-58.

Svabbi gerði 5 stig í upphafi fjórða og Arnar setti niður þrist og minnkaði muninn í 70-66 þegar um sjö og hálf mínúta var eftir af leiknum en heimamenn reyndust sterkari í leiknum, þeir komu muninum aftur í 10 stig og héldu út til leiksloka nokkuð öruggt. Lokatölur 92-85.

Pitts var sterkur í liði KFÍ, gerði 33 stig í leiknum, og þá gerði Kristján Pétur Andrésson 20 stig og þar af 18 úr 3ja stiga skotum. Ísfirðingar spiluðu góða vörn gegn Stólunum og gekk okkur illa að skora innan teigs, sérstaklega átti Valentine erfitt uppdráttar. Sallie gerði 24 stig fyrir Stólana og tók 13 fráköst en stigahæstur hjá Tindastóli var Þröstur Leó sem setti niður fimm þrista í sjö tilraunum og endaði með 25 stig.

Næsti leikur Tindastóls er gegn Fjölni hér heima næstkomandi föstudag. Feykir hvetur stuðningsmenn Stólanna til að fjölmenna því nú verða menn að fara að hala inn stig ef ekki á illa að fara. Áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Þröstur Leó 25, Roburt Sallie 24 / 13 frk, Valentine 12 / 11 frk, Helgi Rafn 10, Svabbi5, Pétur Rúnar 3, Arnar 3 og Helgi Margeirs 3.

Fleiri fréttir