Tindastóll endurnýjar samninga við þrjá leikmenn
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
01.03.2015
kl. 14.03
Ingvi Hrannar Ómarsson, Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson og Bjarni Smári Gíslason undirrituðu nýjan samning við lið Tindastóls sl. föstudag. Leikmennirnir þrír hafa allir leikið með liðinu áður og eru því að endurnýja samninga sína.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Tindastól hefur Ingvi Hrannar leikið 164 leiki í Meistaraflokki fyrir knattspyrnudeild Tindastóls en Benjamín hefur leikið 105 leiki og Bjarni Smári hefur leikið 33 leiki.