Tindastóll féll í 1. deild þrátt fyrir hetjulega baráttu

Leikmenn og stuðningsmenn Tindastóls urðu að bíta í það súra epli í kvöld að falla niður um deild í körfunni eftir hörkuleik við deildarmeistara Grindavíkur. Það var lið KFÍ á Ísafirði sem eitt botnliðanna sigraði sinn leik í kvöld, en Ísfirðingar unnu KR með fimm stiga mun, og komust því upp fyrir Stólana. Lokatölur í Síkinu í kvöld urðu 91-97 fyrir Grindavík. 

Það var fjölmennt í Síkinu en Kaupfélag Skagfirðinga og Fisk Seafood buðu áhorfendum á leikinn. Stemningin var góð og leikurinn fór vel af stað. Byrjunarlið Tindastóls var skipað Búbbunum Svabba og Hreinsa, Helga Rafni og og Johnson og Gibson. Valentine vermdi bekkinn eftir dapra frammistöðu í síðasta leik. Bæði lið voru sjóðheit fyrir utan 3ja stiga línuna og skiptust á um forystuna en það voru gestirnir sem voru þremur stigum yfir, 29-32, að loknum fyrsta leikhluta en breiddin var klárlega meiri hjá þeim. Þeir náðu mest níu stiga forystu í öðrum leikhluta en Stólarnir hleyptu þeim ekki of langt fram úr og í hléi var staðan 46-53.

Seinni hálfleikur var ágæt skemmtun þó stuðningsmenn Stólanna hefðu sjálfsagt viljað vígsla tölunum. Grindvíkingar voru jafnan þetta 3-9 stig yfir því í hvert sinn sem Stólarnir náðu muninum niður komu Grindvíkingar sterkir til baka. Sex stigum munaði fyrir síðasta fjórðung, 69-75, og nú fór að kvisast út að blessaðir KR-ingarnir væru í basli fyrir vestan. Stjarnan var hins vegar að baka Fjölnismenn og því ljóst að Stólarnir þyrftu að halda vel á spöðunum og sigra Grindvíkinga ef þeir ætluðu að halda sætinu í efstu deild. Nema KR-ingar dyttu í gírinn. Leikurinn var æsispennandi og allt á suðupunkti í Síkinu. Þegar um tvær mínútur voru eftir var munurinn kominn niður í 2 stig en Gibson búinn að fá fimm villur. Vörn Tindastóls var orðin þéttari og þegar um mínúta var eftir unnu heimamenn boltann í vörninni og lögðu í sókn með möguleika á að jafna metin eða komast yfir. Boltanum tapaði Johnson um leið og hann fór yfir miðlínuna og Grindvíkingar refsuðu grimmilega. Stólarnir börðust allt til loka en náðu ekki að ógna deildarmeisturunum sem sigruðu sem fyrr segir 91-97.

Þegar leik lauk í Síkinu biðu flestir viðstaddir með símann í hálsinum því enn voru tæpar fimm mínútur til leiksloka á Ísafirði og heimamenn yfir gegn KR. Þó svo að aldrei þessu vant hafi allir Skagfirðingar haldið með KR í fimm mínútur þá dugði það ekki til því KR tapaði og Stólarnir þar með fallnir.

Það er svo sem ekki hægt að nöldra mikið undan leik Tindastóls í kvöld. Tvennt varð þó til að svekkja stuðnigsmenn Tindastóls; George Valentine var ekki svipur hjá sjón frekar en í síðasta leik og vítahittni heimamanna var afar slök þó hún hafi reyndar lagast í fjórða leikhluta. En það var allan tímann ljóst að til að sigra deildarmeistara Grindavíkur þurftu allir að hitta á stórleik. Það náðist ekki alveg þrátt fyrir góða baráttu og ágætan leik.

Tarick Johnson byrjaði leikinn mjög vel og Gibson var drúgur þó hann hafi ekki gengið heill til skógar. Helgi Rafn og Svabbi stóðu fyrir sínu og reyndar dreifðist stigaskor Stólanna vel á milli manna en ólíkt því hvernig háttaði hjá Grindvíkingum þá voru engir yfir 20 stiga menn í Tindastólsliðinu sem gátu dregið vagninn þegar á þurfti að halda. Pétur Birgis sýndi góða takta þann stutta tíma sem hann spilaði og gladdi heimamenn. Hjá gestunum voru Aaron Broussard og Samuel Zeglinski nánast óstöðvandi.

Niðurstaðan af tímabilinu er að sjálfsögðu vonbrigði þó svo að Tindastóll hafi unnið ágætan titil – eina netta bikarkeppni – fyrir jól. En staða liðsins var ágæt þegar fjórar umferðir voru eftir og allt útlit fyrir að einn sigurleikur til viðbótar kæmi liðinu jafnvel í úrslitakeppnina – sem hefði verið raunin þegar upp var staðið. En lukkan var ekki í liði með Stólunum í síðustu umferðunum og leikirnir töpuðust allir, nánast eins og verst varð á kosið, naumlega og svekkjandi. Liðið endaði með 12 stig líkt og ÍR og KFÍ sem höfðu betur í innbyrðisviðureignum sínum við Tindastól og því fór sem fór. En þrátt fyrir svekkjandi töp í fjórum síðustu leikjum tímabilsins þá súpa Stólarnir seiðið af árlegri hörmungarbyrjun á tímabilinu þar sem liðið virðist hreinlega ekki koma klárt til leiks. Nú töpuðust átta eða níu fyrstu leikir tímabilsins og ef það er ekki að reisa sér hurðarás um öxl þá er það bara ekki hægt!

Nú er ekkert annað að gerast en að rífa sig upp aftur – áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Helgi Rafn 16 / 9 frk., Tarick Johnson 16 / 5 stoðs., Svavar Atli 15, Drew Gibson 13, Valentine 10, Þröstur Leó 9, Pétur Rúnar 5, Hreinn Gunnar 5 og Helgi Freyr 2.

Fleiri fréttir